bullubjáninn
Þá er maður fluttur
var bara helvíti fínt. En núna er allt fluttningsstressið búið og
þá tekur bara nýtt stress við. Undirbúningur fyrir bruðkaupið. Núna
byrja sko. Fórum í gær upp að Fitjum í Skorradal. Og þar vil ég
gjarnan hafa veislun. Það er alveg rosalega fallegt að keyra inn
Skorradalinn. Bara erfitt að trúa því að þetta sé á Íslandi. Og það
er æði að koma að Fitjum. Fallegur staður og fín aðstaða til að
hafa veislu. Pínulítil kirkja og allt voða kósý. Þannig að það er
í kjólinn svo ég geti farið að byrja á að sauma. Og svo þurfum við
líka að fara að ákveða hvernig verður með boðskortin og fara
fljótlega að senda þau. Það er svo margt sem þarf að gera :o Eins
gott að ég á tengdamömmu sem hefur gaman af að skipuleggja svona
Komin með lyklana!!
stóra draslið á morgun og þá sofum við fyrstu nóttina okkar í nýja
heilsuna í það. Var heima í dag og í gær þar sem snillingnum mér
tókst að veiða mér blöðrubólgu!! Og það á heitasta degimum sem af
er þessu sumri! Hvað er málið sko? Maður á ekki að fá blöðsubólgu á
sumrin. En ég svaf sama og ekkert síðustu tvær nætur og var því með
þrumandi hausverk þegar ég vaknaði af tveggjatíma blundinum sem ég
náði í morgun. Ætlaði í vinnuna en hausinn mótmælti hverri einustu
hreifingu. Sem betur fer er blöðrubólgan svo gott sem horfin en
hausinn er með sprengihótanir á fullu. Ekki gaman. Verð vonandi í
Fordómar
ef dýpra er grafið má finna einhverja fordóma hjá flestum. Kanski
ekki neina merkilega. Ég skal alveg viðurkenna að ég er með smá
fordóma gagnvart múslimum. Er hreinlega hrædd við
bókstafstrúarfólk, sérstaklega múslima. En það sem varð kveikjan að
þessu rausi mínu var hlutur sem ég sá á barnalandi í einni
umræðunni. Ein var að spurja hvort hann Alexander Aron væri ekki
barasta ágætur einkaþjálfari. Þá kom þetta mjög svo vitiborna svar
frá einni mannvitsbrekkunni á svæðinu: "Ég bara get ekki treyst
einkaþjálfara með þetta nafn. Myndin af 4 ára strák í sandkassaleik
víkur ekki úr huga mér." Þessi er augljóslega ósátt og fordómafull
gagnvart svokölluðum "tísku"nöfnum. Og hún er sko ekkert ein í
þessum hópi. Alveg merkilegur andskoti hvað fólk getur velt sér upp
úr nöfnum annarra og verið með skítaskot á sum þeirra. Og
fullyrðingarnar um að börn sem heita sérstökum nöfnum verði frekar
fyrir einelti hef ég alveg ofnæmi fyrir. Við verðum því miður að
sætta okkur við það að ekki allir hafa sama smekk þegar kemur að
nöfnunum sem við veljum á afkvæmin okkar. Er nokkuð viss um að
sumum af þessum leiðindarbeljum sem væla hvað mest finnst nafnið á
Róslunni minni alveg hræðilega sykurhúðað og væmið. Það finnst mér
umræðuefni áður en ég fer út í einhverjar blammeringar á þetta
fordómafulla pakk. Við fórum í síðustu viku og skrifuðum undir alla
pappíra þannig að frá og með 15. júní eigum við húsði okkar :D
Þannig að í síðasta lagi á föstudaginn erum við að fara að flytja,
loksins!! Get varla beðið. Er hálfnuð með að pakka. Vona bara svo
innilega að við fáum íbúðina afhenta eitthvað aðeins fyrr svo við
getum verið með innflutningspartý bara á föstudaginn, það væri
Loksins!
maður að verða fullorðin. Núna styttist í að við flytjum. Fengum já
frá íbúðalánasjóðnum í dag og þar sem íbúðin stendur auð þá var
fasteignasalinn mjög svo bjartsýnn á að við værum að fara að flytja
Svo er bara að vona að allt gangi í gegn á fimmtudaginn eins og
fasteignasalinn vonaðist til fyrir okkur. Þá getum við bara farið
flytjum. Að fara í þrisvar sinnum stærra húsnæði verður sko
munaður. Og fá loksins eldhús sem er stærra en frímerki! Og sér
herbergi undir öll leikföngin hennar Róslu! Guð, get varla beðið.
farið að byrja að gera eitthvað í camaronum. Jah, eða Ásgeir getur
farið að gera eitthvað í honum og ég fæ að þvælast fyrir
Ég hata aumingja
aumingji í mínum bókum er til dæmis manneskja sem níðist á dýrum.
Það er einn svona aumingji og fæðingarhálfviti hér í Hveró. Hann
hefur víst búið hér lengi, því miður. Sem betur fer veit ég ekki
hver þessi aumingji er því ég er ekki viss um að ég gæti sleppt því
að hegða mér virkilega illa gagnvart honum. Þetta er sem sagt
aumingjatýpan sem hatar ketti og drepur þá. Ketti sem aðrir eiga.
Er hægt að vera viðurstyggilegri en að taka annara manna gæludýr og
bara láta þau hverfa. Á tímabili voru nokkrir kettir sem drápust
eftir að hafa komist í rottueytur. Þarf enginn að reyna að segja
götunni. Tveir meirað segja á sama heimilinu. Jújú, auðvitað týnast
kettir, verða fyrir bílum aumingja sem ekki láta neinn vita og
henda þeim bara í næstu tunnu. En það þarf enginn að segja mér að
tveir kettir af sama heimilinu verði báðir fyrir bíl einhvers
fávita á sama tíma. Er farin að trúa því að það hafi ekkert verið
slys þegar Yrjan mín hvarf á sínum tíma. Ætla mér sko skammarlaust
að kenna þessum aumingja um það. Ef ég vissi hver þetta væri og
hefði vald til þá mundi ég svo sannalega gera þessari manneskju
lífið eins leitt og hægt væri. Svona fólk er jafn réttdræpt í mínum
augum og fólk sem níðist á börnum. Vona svo sannalega að þetta ógeð
Ó mín góðvild sko!
Er ekki viss um að ég hefði lifað af með tvö með stuttu millibili.
Hann Júlíus kom hingað í gær, Róslu til mikillar gleði, og gisti
hér hjá okkur í nótt. Þarf varla að nefna það að íbúðin er eins og
eftir loftárás. Rósla er nú nokkuð dugleg að dralsa til en þau tvö
saman er sko ekki gaman fyrir mig :| Það er dót um allt gólf. Og ég
mátti gjöra svo vel og fara á fætur rétt yfir 7. Ekki gaman.
Þá er það ákveðið
ég að verða gift kelling! Loksins er búið að neggla dag og þá get
ég farið að plana almennilega. Verður allt svo miklu raunverulegra
þegar það er komin dagsetning. Get ekki beðið :D Þarf að fara að
vinna í því að finna efni í kjól og gera almennilegt snið og læti.
Og ákveða hverjir eru nógu merkilegir til að fá boð í þennann
eigið húsnæði. Erum orðin svoldið leið á að búa í skókassa :P
Planið er að drífa okkur í greiðslumat og fara að gera eitthvað í
þessu ástandi. Svona fyrst að Ásgeir er komin í svona góða vinnu og
allt lítur svona skemmtilega út fyrir okkur. Það er meirað segja
séns að við sleppum því að selja Broncoinn! Sem eru æðislegar
fréttir :D Elska þennann bíl nebbla :P Væri snilld að getað haldið
arg og garg
svo bara hvarf. Þetta er sko einn versti mánudagur sem ég hef
upplifað lengi. Það er bara allt á móti mér held ég. Vaknaði fúl,
þreytt, pirruð og aðeins of seint. Komst að því að lata ég hafði
gleymt að bjarga blauta sandborna regngallanum hennar Róslu úr
pokanum sem honum var troðið í á föstudaginn. Sem varð til þess að
ég varð að setja hana í úlpuna sem ég ætlaði að þvo í síðustu vikku
og er vægast sagt viðbjóðsleg. Veiddi hálfbráðinn sleikjó úr
vasanum, bara til að toppa ógeðið. Hálf hljóp hérna út úr húsi svo
aumingja Ásgeir fékk ekki einu sinni koss bless. Krakkinn mátti
hafa sig alla við til að halda í við mig og var alveg búin á því
þegar hún var komin í leikskólann. Þegar Elísa pikkaði mig upp við
leikskólann fékk ég þær fréttir að í dag þyrfti að bera út auka þar
sem ein hringdi sig veika. Ömó! Svo pikkaði ég inn sæmilega færslu
hérna áðan sem bara hvarf! Eins gott að restin af þessum degi verði
sæmilegur því þetta er meira en nóg pirringsefni fyrir einn dag :|
föstudagurinn 13
slatta af köstum :P byrjaði daginn á hræðslukasti, fékk svo
panikkkast, fýlukast, brjálæðiskast og svo framvegis. Gleymdi samt
algjörlega að fá tiltektarkast :/ klaufaskapur var það! En það er
of seint að grenja það. Ég er síðan búin að komast að þeirri
niðurstöðu að ég ætla bara alveg að sleppa því að sjá "The
Messengers" með Ásgeiri. Er bara búin að sjá trailerinn og er farin
að fá hræðsluköst yfir honum. Þoli ekki minn ofvirka heila :|
Þannig að líklegast er gáfulegast að láta Ásgeir bara horfa einann
á allar draugamyndir fyrst hann þarf endilega að hafa gaman af þeim
:S Í staðinn sleppi ég því að neyða hann til að góna á vælumyndir
:P Örugglega ekkert gaman að hafa mig grenjandi á öxlinni hvort eð
er :haha:
Greddupadda!
Hún er aftur byrjuð að breima, nýbúin :| Tók sér vikupásu! Er búin
að redda pillunni fyrir hana en hún virkar greynilega ekki um leið
og hún kingir henni :o Svo heldur þetta gerpi að tærnar á mér séu
eitthver kynlífsleikföng, sérhönnuð fyrir hana. Alltaf að reyna að
fróa sér á þeim.! Óþolandi andskoti. En vonandi er þetta síðasta
breimið hennar ever. Um leið og við höfum efni á því þá verður hún
sko tekin úr sambandi.
úbbosí
unglingamamma í Bláfellinu þá varð ég náttla að henda hundinum út
að pissa núna áðan. Og þar sem þetta hundspott er svo vel alið þá
getur maður bara hent henni út og kallað svo bara á hana eftir smá
stund. Hún fer ekkert af lóðinni. En hún ver sitt og geltir á
óboðna gesti sem koma of nálægt :P Heyrði hana einmitt gelta í
morgun. Rík af stað út í hurð og hleyp næstuma á rússann sem ber út
fréttablaðið (póstkassinn er alveg við þvottahúsinnganginn). Býð
auðvitað góðann daginn, garga á hundinn að þegja og drullast inn og
byð mamminn að afsaka þetta. Besta var að þarna stóð ég hálfnakin í
hurðinni, bara á nærum og brjóstahaldara :o Vonum bara að hann hafi
Ný vika
svona. Bara allir á lappir 7 og bara dúllast við að komast í gang.
Ég var agalega montin af skottunni í gær. Hún lét mig í alvöru vita
með pínu fyrirvara að nú þyrfti hún að pissa. Vanalegast hefur hún
ekki látið vita fyrr en hún er búin að pissa allavega smá á sig. En
í gæt, tvisvar sinnum meirað segja, lét hún vita með nægum
fyrirvara. Þetta segir mér að þetta er alveg að hafast. Það gerist
samt enn eitt slys á dag að meðaltali en það er allt í læ :) Ég get
lifað við það. Hef ekki sett á hana bleiu núna í einhverjar 2
vikur. Læt þær samt setja á hana eina í útiverunni í leikskólanum.
Ég er svo vanaföst að það er hræðilegt. Mér finnst alveg agalegt að
sjá hann svona stuttkliptann og hökutopslausann :| En þetta bara
hlítur að venjast, vona það allavega. Finnst reyndar verra að hann
sé ekki með hökutoppinn lengur. Fljót að venjast hárinu en ekkert
Sunnudagur
loksins, kominn mánuðu síðan síðast. Sibbi kom heim á föstudaginn
þannig að Róslan er í bænum. Það var alveg æðislegt að getað
stungið af út á föstudagskvöldið og ekkert þurfa að pæla í
stelpunni. Til að fá frið frá kettinum og þessu bévaða breimi þá
var hún bara lokuð inn á klósti. og þar verður hún geimd næstu daga
meðan við sofum eða erum ekki heima. Nenni ekki meiru pissuveseni
Skál!
rautt í glasi :) Flónið sem ég er að skála fyrir er reyndar ekki á
skifti sem síminn hringdi. Var að bíða eftir símtali frá Ásgeiri.
Og var innilega að vona að hann mundi hafa góðar fréttir að færa.
Hann fór nebbla í atvinnuviðtal í gær. Var mjög spenntur fyrir
þessari vinnu. Og hann átti sem sagt að fá svar í dag um hvort hann
fengi hana. Og mér (og honum auðvitað líka) til mikillar gleði fær
hann vinnuna :D Sem er æði því hún er á Sleffossi. Þannig að hann
þarf ekki að fara að vinna í bænum aftur eins og útlit var fyrir.
Og þetta er vinna við hluti sem hann hefur mikinn áhuga á sem er
snilld :D Þanig að nú fær hin vinnan bara fingurinn
Ömó dagar
þegar kemur að vanlíðan þeirra sem standa mér næst. Það er "smá"
pirringur í gangi í vinnunni hans Ásgeirs og ég er búin að vera svo
pirruð og reið yfir því. Reyndar ekki bara síðustu tvo daga, það er
bara verra þá daga sem hann er að vinna. Ég er svo fúl yfir þessu
öllu og hálfpartinn með móral yfir að hafa dregið hann hingað í
Hveró. Finnst þetta allt einhvernvegin mín sök :| Var búin að
gleyma hversu vond tilfinning það er að virkilega óska einhverjum
ills og meina það :S Svo oná þennann pirring kemur bögg út af Róslu
og bleyjumálum. Hún var svo dugleg að pissa í klóstið í veikindunum
þannig að ég virkilega trúði því á sunnudaginn að núna mundi þetta
bara hafast. En nei, hún þrjóskast enn við :| Pissaði 5 sinnum á
sig í gær eftir að hún kom heim úr leikskólanum :| Var orðin frekar
tæp á skapinu hérna. Þannig að það er kanski ekki furða að Ásgeir
sá sig knúinn til að stinga bara af í bæinn í gærkvöldi. Hefði
örugglega ekki verið gaman að vera heima með fúlu mér.