Eins og Svava orðaði það svo skemmtilega um daginn, loksins er
maður að verða fullorðin. Núna styttist í að við flytjum. Fengum já
frá íbúðalánasjóðnum í dag og þar sem íbúðin stendur auð þá var
fasteignasalinn mjög svo bjartsýnn á að við værum að fara að flytja
bara um helgina 
Ræð mér varla fyrir kæti og er sko byrjuð að pakka niður. Og það
verður sko aðal áhugamálið næstu dagana get ég sagt ykkur
Svo er bara að vona að allt gangi í gegn á fimmtudaginn eins og
fasteignasalinn vonaðist til fyrir okkur. Þá getum við bara farið
að koma okkur.
Við verðum örugglega með víðáttubrjálæði fyrst eftir að við
flytjum. Að fara í þrisvar sinnum stærra húsnæði verður sko
munaður. Og fá loksins eldhús sem er stærra en frímerki! Og sér
herbergi undir öll leikföngin hennar Róslu! Guð, get varla beðið.
Þetta verður þvílíkur munaður! 
Og tala nú ekki um munaðinn að hafa bílskúr sko. Þá getum við
farið að byrja að gera eitthvað í camaronum. Jah, eða Ásgeir getur
farið að gera eitthvað í honum og ég fæ að þvælast fyrir
En allavega, best að reyna að koma einhverju í verk hérna svo ég
sitji ekki bara og fyllist af orku og springi svo